Jæja veriði öll sæl og blessuð. Í dag hef ég jafn lítið að segja og vanalega hehe lol. Lítið búið að gerast núna. Skrapp á Akureyri á föstudaginn, var ekkert mjög gaman þar sem að ég er búin að vera mjög veik, reyndi nú samt mitt besta að hafa gaman. Ætlaði að vera þarna yfir alla helgina en ég var fljót að koma mér heim á laugardeginum. Á laugardaginn var voða gott veður og komst maður í smá sumar skap.. ekki hélst það nú lengi en hver býst nú við því hérna fyrir austan hah. Svo um kvöldið kíktum við á Kósy (sem btw er búin að opna aftur) ekki mikið af fólki þar að vísu.. held líka að það viti ekkert margir af því að það sé opnað aftur um helgar.. enda líka búið að gera miklar breytingar á staðnum og má nú segja að hann er ekki sá sami, og er ég ekki alveg ánægð með breytingarnar Eeen.. sama rugl þá, fór snemma heim.. var ekki að meika að vera úti.. drepast úr verkjum haha frábært hmm:) Heiða litla prinsessa er komin með kall sem er rosalega fínn og erum ég og hann búin að stofna okkur klúbb.. hann er nefnilega með svona líka fallegt bil á milli tannanna eins og ég.. og fynnst okkur það svo töff að við bjuggum til klúbb.. hehe lol, var að fatta það núna að við erum samt ekki búin að finna nafn á hann... verð nú að fara að bæta úr því:D ...og er hún litla að deyja úr hamingju, held líka loksins að hún sem komin með góðan gæja í hendurnar og er nú eins gott að hún haldi sér í þennan. Því hún á allt gott skilið og meira. Núna er hún að reyna að troða mér á myspace.. og ætla ég að leyfa henni að gera það. þannig fljótlega verð ég líklega komin með aðra síðu en ég ætla nú samt að halda þessari lika. (veit ekki alveg afhverju.. ekki eins og ég sé nu rosa dugleg að blogga eða færa inn myndir) Sem btw ég fer að gera fljótlega um leið og ég nenni, þa bara tekur alltof langan tíma:S Var að fá alcoa pappírana í pósti í dag, sem þíðir það allt er að gerast, þarf að kvitta undir einhverjar safety reglur og fara í heilsufarsskoðun og margt fleira. En það stóð að ég byrja 2.mai og verður frábært að vera komin með stöðuga vinnu aftur og vona ég bara að mér eigi eftir að líka jafn vel við hana og ess. Var að hugsa í dag hversu mikið ég sakna þess að vera þar hehe, manni líkaði ekki alltaf vinnan en þegar allt kemur til alls þá var hún og starfsfólkið nokkuð skemmtilegt. Hmm.. ekki mikið af plani að gerast í þessum mánuði hjá mér, reyna að fara að koma mér í form kannski, ( er orðin alltof asskoti löt) kíkja eitthvað út á lífið ef mér fer að batna fljótlega.. var boðið á ball næstu helgi, kántrý eitthvað hjá bectel, veit samt ekki ennþá hvort ég fer kemur allt í ljós. Það er mjög einmannalegt hérna á heimilinu.. Freyja fór til Rvk með Nínu í gær og kemur ekki fyrr en á föstudaginn, maður tekur alveg eftir því að það vantar eitthvað hérna og vona ég innilega að hún fari aldrei aftur svona lengi frá okkur.. henni er sárt saknað:**:)
En já komið nóg í bili... hei... Bryndís vinkona var að eignast núna 15. fallegan prins og er ég svo hamingjusöm fyrir hennar og Torfa hönd. hlakka ekkert smá til þegar þau flytja hingað austur sem verður í sumar. Hann var 14merkur og 51cm. ohhh líka þetta litla krútt.. set inn hérna mynd af honum. og eina af bræðrum mínum.. svo þið sjáið hversu fallega fjölskyldu ég... Ég sakna strákanna mjög mikið Trítill Torfason.. litla krútt
Guðjón Berg og Hlynur Fannar.. fallegustu bræður í heiminum..!!:**
17. apríl 2007 klukkan 21:59
Þórdís Arna Stefándóttir 5 athugasemdir
Já halló, ég verð víst að fara að standa undir minu.. ekkert smá mikil pressa að þurfa að blogga svona mikið hahh! En lítið að frétta hérna meigin, Ég tók nokkrar auka vaktir hjá ess í eldhúsinu, sem var fínt maður var alveg farinn að sakna allra! En annars er ég eiginlega bara búin að vera í fríi, nema að á miðvikudaginn var ball á eskifirði með hljómsveitinni buff, ég var að vinna í miðasölunni og svo smá á barnum líka sem var fínt. Var samt búin að biðja Kalla um að setja mig ekki í neina vinnu þar sem ég þyrfti að díla við fólk, cuz lets face it.. ég er mjög feimin. En ég er alveg þakklát fyrir þetta því ég held að það hafi hjálpað mér aðeins. Það var líka mjög gaman að vera edrú og horfa á alla blind fulla og gera sig að fíflum hahahh!! En já ég vil afsaka seinasta blogg, ég var pínu þunglynd og hehh já hefði kannski ekkert að láta það bitna á blogginu... eeen nú vitiði það hahh! En þetta er aðeins hressara, það eru allir búnir að vera að segja mér hvað ég eigi marga að til að tala við.. og ég vissi það alveg, en eins og ég sagði seinast.. my problem is my problem!
Svo í gærkvöldi komu strákarnir hingað heim(Sindri og Pétur) og grilluðu fyrir okkur stelpurnar kjúkling, rif og hamborgara.. vorum með gularbaunir, bearnes sósu og allan pakkann, einnig komu þeir með rauðvín.. þannig þetta var mjög gaman og ég þakka þeim fyrir góða máltíð..!:) Svo stungu þeir okkur bara af (mæta í vinnu snemma) og heiða fór upp á 5 hæð held ég.. Þannig ég fór bara upp í rúm snemma, btw ég er komin með nýtt og stórt rúm sem er mjög þægilegt!.. ég er búin að vera að eiga við svefnvandamál að stríða.. sef aldrei meira en í 4 tíma og á þessum 4 tímum vakna ég svona 7 sinnum.. þannig ég hef eiginlega ekki fengið heilan og góðan svefn í 2 mánuði:s en núna í nott svaf ég í 8 tíma án þess að vakna sem var heví gott...!! Proud of myself. Núna er páskarnir (föstudagurinn langi) og það er ekkert að gera.. þetta er búin að vera mjög mikill leti dagur.. heiða er að nappa, freyja eitthvað að vesenast í nýja harða disknum sínum og ég upp í rúmi að blogga hahh! Frábær stemning hérna heima. Ég gæti svosem verið að borða páska egg eða hlakkað til að borða páskaeggið mitt sem ég fékk frá Diane en nei.. átvaglið hún Þórdís er búin með það... þannig núna á ég ekkert páskaegg! Ég þarf að horfa á stelpurnar borða sín á sunnudaginn:s not happy jan Ég veit eiginlega ekkert hvað það á að gera í kvöld eða um helgina.. mig grunar að það verði bara slakað á í kvöld og jafnvel skellt sér á ball á morgun. Vera hinum meigin við miðasöluna og barinn hehe!.. En það kemur allt í ljos veit það að ég ætla að láta eins og vitleysingur á ballinu og skemmta mér konungslega! Bunað lofa heiðu það.,. hún er ekki sátt að ég sé alltaf farin heim snemma og nenni ekki neinu.. en bíddu bara princess( hahaha) ég skal sko reyna mitt besta og koma þér á óvart.
En núna ætla ég að fara.. komið nóg í bili og ég ætla að reyna að setja fleiri myndir inn á síðuna. . það er samt ekki alveg að ganga hjá mér.. kann ekki alveg á þetta og ég er búin að bíða í hálftíma eftir að 10 myndir fari inn...(held að ég sé ekki alveg að gera þetta rétt) þannig ef einhver bíður hjálp sína er hún vel þegin.. Verið ekki feimin við að comennta og lifði heil... .......Þórdís (bananahamic)
06. apríl 2007 klukkan 13:51
Þórdís Arna Stefándóttir 9 athugasemdir
Já.. hvað segið þið gott í dag? Ég er svona lala hress.. Ég held að ég sé bara að missa mig úr áhyggjum, leiðindum, sorg og þunglyndi!! Annars mjög hress
Ég er búin að vera einhverri heví lægð síðan ég flutti inn í þessa íbúð sem var í febrúar..:S ég held bara að ég sé ekki ánægð hérna á Reyðarfirði, mér líður alltof oft illa og langar bara að loka mig inní herbergi og aldrei fara fram aftur!!! Lífið mitt er ekki búið að fara eins og ég ætlaði mér! Það er allt á hvolfi hjá mér núna.. bæði hjá fjölskyldunni, vinunum.. ástarlífinu, andlega og fjárhagslega! ARG!!!!! ég get ekki einu sinni sagt neinum neitt afþví ég er alltof þrjósk til þess að treysta einhverjum fyrir minum vandamálum.. ég hef líka alltaf verið þannig að mér fynnst að mín vandamál séu bara mín og ég eigi ekki að þurfa að trufla annað fólk með þeim! Mig langar bara að taka útrás á einverju, einhverjum eða einhvernveginn.. ég bara veit ekki hvernig! Ég skal sko segja ykkur það að mér langar ekki að líða svona.. ég vakna á hverjum degi og hugsa.. jæja nú ætla ég að vera jákvæð og hress.. en svo eftir smá tíma er ég komin í mínu heimsku lægð ooog ahhh... djö!
Þið sem eruð að lesa þetta haldið ábyggilega að ég sé eitthvað trufluð í hausnum.. en þetta meikar allt sens fyrir mér!.. held ég!
Ég veit líka að ég þarf að gera eitthvað í þessu.. en ég held að það sé ekki hægt herna á reyðarfirði! þannig...
en vá sorry ætlaði ekki að vera svona ömurleg í blogginu.. ég er hætt núna.. bæbæ..
30. mars 2007 klukkan 13:10
Þórdís Arna Stefándóttir 9 athugasemdir
Jæja nú vona ég að Sindri og Heiða láti mig í friði því núna er ég loksins sest niður við tölvuna og farin að blogga, jáhh eins og ég segi alltaf furðuverk eiga sér stað.
En jebb eins og ég segi líka alltaf.. þá er hugmyndaflugið mitt, og lífið mitt ekki nógu og gott til að skrifa um, en ég mun reyna mitt besta hérna.. þetta verður bara létt og stutt.
Hmm.. ég þarf nú ekki að segja ykkur að ég sé flutt inn með freyju og heiðu, því Heiða mín sá um það fyrir mig í commentinu hahh.. thanks 4 the help dúllan mín=)
En já, ég er hætt hjá Ess núna.. frekar skrítið ágætis vinnustaður og maður á eftir að sakna allra þar og bið bara vel að heilsa. Ég og Freyja byrjum í alcoa 1.mai og er kominn smá fiðringur í mallan, vonum bara að það gangi allt vel, annars veit ég ekki hvað er hægt að gera hérna á Reyðarfirði ha hmm.
Í gær þá ákvöðum við stelpurnar að skemmta okkur vel því það er verið að loka á kósý og þurftum við nú að kveðja staðinn með stæl. Það var byrjað að fá sér í glas um 3 leytið heh og sest niður og farið í friends spilið.. sem að sjálfsögðu ég vann.. múhahaha=) ég held líka að ef ég hefði tapað þá hefði ég ekki farið út í gær.. því að eins og þeir sem að þekkja mig vita þá er ég mjög tapsár.
En já eins og ég var að segja þá var tekið vel á því í gær.. allir tóku sig vel til, Sindri og Rannveig gistu hjá okkur og fórum við í partý & co og var mikið hlegið og er alveg hægt að segja að heiða litla er góður leikari og á hun eftir að standa sig með prýðum í leikfélaginu. Ég er ekki alveg viss hver vann það spil því ég þurfti að taka fáeinar verkjatöflur og leggja mig áður en ég færi út... allt önnur saga að segja frá því en jámm þegar ég var að taka mig til fékk ég allt í einu rosalega sting í öxlina og byrjaði öll vinstri hliðina að dofna og eftir stuttan tíma var ég hætt að finna fyrir henni, sem var frekar scary.. en svo lagaðist það og ég fékk bara heví hita og beinverki í staðinn.. en ég lét það nú ekki stoppa mig og fór ég með liðinu á kósý. Eins og oft þá var ég hálf edrú en ég held að hún heiða mín hafi drukkið fyrir mig því hún var orðin frekar völlt þegar farið var út hehh=) sem er bara töff cuz we love drunk heiða..
Það var mjög gaman í gær og held ég bara að allir hafi skemmt sér mjög vel.. ég MAN allavegana að ég skemmti mér ágætlega, sem er annað hægt að segja um hana heiðu.. því hún man nákvæmlega ekkert eftir gærkvöldinu, sem er kannski ágætt=) Freyja skemmti sér frekar vel og var hún ekki lengi að næla sér í einn gæja og fara með honum heim.. úúú, our little girl is growing up. Ég veit það að Sindri kom á rassgatinu heim og drapst upp í rúmi, og rannveig datt bara í heví spjall allan tíman og var mjög lítið með okkur á dansgólfinu. En ég var komin heim um hálf 3 lasin og þreytt en svaf því miður nákvæmlega ekki neitt og á ég eftir að vera frekar þreytt því ég er að fara á næturvakt kl 12 í kvöld veiii.. hmm
En svona er þetta.. það er bara gaman að þessu, bráðum þurfum við að fara að finna okkur nýjan stað til að dilla okkur á, og já það getur nú ekki verið það erfitt með alla þessa litlu bæji kringum okkur.
En ég held að þetta sé komið nóg hjá mér, er komin með krampa í hendurnar og er algjörlega uppiskroppa með eitthvað að segja... Þannig lifið heil og sæl og já bless=)
18. mars 2007 klukkan 19:45
Þórdís Arna Stefándóttir 3 athugasemdir
Já góðan daginn.. Ég er mætt aftur.. ég verð í alvörunni að fara að bæta mig.. þetta gengur ekki alveg nógu og vel hjá mér, málið er bara að ég er ekki mjög málglöð og það er mjög erfitt fyrir mig að skrifa. En já það er annars bara allt gott að frétta.. Ég, Freyja og Heiða erum loksins að fara að fá íbúðina okkar.. byrjum að leigja 1.febrúar 4 herb íbuð.. magnað ha? leigan er að vísu pínu há, en þegar við deilum þvi í þrennt þá skánar þetta aðeins.. Svo fór ég í viðtal hjá capasent fyrir alcoa starfið og það gekk mjög vel.. þau ætluðu að hafa samband við mig eftir 3-5 vikur ef ég fengið annað viðtal og þau hringdu bara í mig í gær.. þannig í er að fara í viðtal í næstu viku vúhú...=) vona svo innilega að ég fá starfið... en jám ég er að hætta á vöktunum sem ég er á núna.. er að fara að byrja aftur á 14-14 það verður fínt.. en jomm malcolm in the middle var að byrja.. þannig ég ætla að horfa á það.. verð í bandi fljótlega.. vonandi hehe blessó..
26. janúar 2007 klukkan 02:32
Þórdís Arna Stefándóttir 8 athugasemdir
Jaeja ta er eg komin aftur, tid verdid samt ad afsaka ad tad er ekki haegt ad nota islenska stafi i tolvunni sem eg er i.. En eg segi bara allt tad finasta, er ennta ta bara a reydarfirdi ad vinna i FTV sem er fint, geri samt voda litid annad en ad vinna og svo lesa.. kaerastinn minn er buinn ad vera i burtu nuna i manud tannig mer er farid ad leidast pinu, en hann kemur aftur a laugardaginn vuhu.. 'eg er buin ad vera mjog veik uppa sidkastid, lennti uppa spitala og alles.. og einhvern veginn vid tad datt oll longun til ad fara ut a djammid, eg verd ad fara ad reyna allavegana ad skemmta mer adeins.. farin ad sakna soltid heidu og stelpnanna vitlausu a kosy heh, en vo eg hef svo ekkert ad segja tad er alltaf verid ad bidja mig um ad blogga meira.. tad er bara svo erfitt tegar menn eru svona hugmyndasnaudir eins og eg tannig eg aetla ad haetta tessu nuna og reyna ad finna eitthvad athyglisvert ad segja .. ta kem eg og blogga aftur... cya when i cya..
16. nóvember 2006 klukkan 23:23
Þórdís Arna Stefándóttir 4 athugasemdir
Jæja, þá er helgin að verða búin.. vinnan fer að byrja fljótlega semsagt á miðvikudaginn og er ég ekkert rosalega spennt heh! Þrífa helv kampana sem pólverjarnir eru búnar að míga út um allt og hvaðeina, getur stundum verið helvíti þreytandi hvað þeir eru sumir hverjir ósnyrtilegir!!!! Þetta venst samt
En í dag fórum ég, bryndís, torfi og stefanía í smá ferðalag.. kíkkuðum á stöðvarfjörð og skoðuðum steinasafn petru.. vorum nú samt ekki lengi þar því það var alveg helvíti mikið rok og leiðinda veður! Eftir það var ferðinni heitið uppá kárahnjúka, þetta er ekkert smá stór virkjun, ég bjóst nú við stórri en vá.. Svo veit ég ekkert afhverju í andsk. sumt fólk er að berjast fyrir "náttúrru fegurðinni" þarna hún er nú alls ekki mikil, vera að segja að það sé verið að eyðileggja gróðurinn.. það er nú alls enginn gróður þarna.. bara grjót!! Een ætla nú ekkert að vera að fara út í neina pólitík hérna..
Núna ætla ég að fara á cafe kósý á reyðarfirði og hitta eitthvað lið, vinkona mín er blind full, hringjandi í mig á milljón segjandi að það sé rosalegt stuð.. ég nú eftir að sjá það.. hehh!! marh verður nú að gera það besta hérna á reyðarfirði þa er nú alls ekki mikið hægt að gera!! well.. bæ!!
16. júlí 2006 klukkan 05:50
Þórdís Arna Stefándóttir 3 athugasemdir
Jæja.. þá er ég búin að eignast bróður. Sigga Magga, kona pabba átti í nótt enn annan prinsinn sem var 14 merkur og 53cm algjör gull moli Ég tel mig mjög heppna að eiga 3 yndislega bræður og er ég mjög stolt af þeim. En hef ekki tíma í að blogga núna, er að fara á fæðingardeildina að skoða prinsinn heirumst sem fyrst, svo af sjálfsögðu koma myndir af honum... cya soon
14. júlí 2006 klukkan 18:32
Þórdís Arna Stefándóttir Engin athugasemd
Jæja þá er ég komin með nýtt blogg, vona að mér gangi betur hér hahh en það er lítið að frétta af mér, ég er enn á reyðarfirði að vinna, gengur bara heví vel og alltaf brjálað að gera, er reyndar komin í 2eggja vikna frí núna, og er að deyja úr leiðindum, greyið siggi er að vera brjálaður af mér hehh! En ég get ekkert gert núna, þarf að fara að borða og svo vesenast aðeins eftir mat, een ég kem með eikkað sniðugt á næsta bloggi heirumst á morgun cya:**=)
09. júlí 2006 klukkan 23:09
Þórdís Arna Stefándóttir Engin athugasemd